ág./100
Skemtileg umfjöllun
http://www.pressan.is/pressupennar/LesaOlafArnarson/blus-i-bodi-orkuveitunnar
ág./100
Gaman á Menningarnótt
Það var gaman hjá Íslenska Cadillac klúbbnum á menningarnótt hjá Orkuveituni, alls mættu 23 bílar á svæðið, sem er met þátttaka hjá klúbbnum. Við erum að verða flottur klúbbur , Dóri Braga og Þorleifur bassaleikari tóku nokra blúsa og guðfaðir klúbbsins Ólafur Gunnarsson las upp úr bók sinni “ Úti að aka“ Við þökkum okkur öllum fyrir góðan og skemmtilegan dag , það eru komnar myndir inn í myndaalbúmið og bíll mánaðarinns hefur verið valin.
Jóivill formaður
ág./100
Hittingur Menningarnótt 21. Ágúst
Við ætlum að hittast á planinu fyrir framan dælustöð Orkuveitunar í Klettagörðum ,sem er með opið hús Laugardaginn 21 ‘Agúst Kl. 16.00-18.00. Já Ólafur Gunnarsson rithöfundur og guðfaðir klúbbsinns verður á svæðinnu einnig ætlar Dóri Braga að taka nokkra blúsa fyrir okkur, Ath mæting Kl. 16.oo.
Jóivill formaður
ág./100
Cadillac myndaalbúm
http://picasaweb.google.com/joivill/CadillacPhotograph#
Á þessari slóð eru nokkrar Cadillac myndir. Við mynnum á 21 ‘agúst ,menningarnótt, þá verður Íslenski Cadillac Klúbburinn með uppstyllingu við Orkuveituhúsið í Sundahöfn. Nánari upplýsingar síðar.
júlí/100
Hamborgara Búllu Rúntur 27 Júlí 2010
Það var góð þátttaka í búllurúntinum i gærkvöldi ,alls voru 12 Cadillac bílar mættir á planið norðan við Búlluna. Þeir Búlluborgara menn tóku vel á móti Íslenska Cadillac klúbbnum, sem stilltu bílunum upp þó að þröngt væri um þá. Við stöldruðum þarna við í 1 1/2 klst.og þáðum góðar veitingar hjá þeim, og þökkum fyrir það. Að lokum var tekin rúntur niður á höfn síðan Hverfisgata og Laugarvegur og endað á N1 Hringbraut þeir hörðustu tóku annan Laugarveg. Myndir í mynda albúmi fljótlega
Kv JóiVill formaður
júlí/100
Landsmótið
Það heppnaðist mjög vel þetta þriðja landsmót Cadillac Klúbbsinns, alls tóku tólf bilar þátt ,þetta var góður og samstilltur hópur, bílarnir voru að ýmsum árgerðum, sá elsti 1955, módel blár eðalgripur, Við birjuðum uppi á OLÍS planinu Norðlingaholti, þar var boðið upp á kaffi og kleinur, síðan var ekið austur að Ingólfsskála og þar var meira kaffi og kökur það voru góðar mótökur þarna og gaman að hitta Björn verta sem fræddi okkur um byggingu skálans og jarðskjálftan mikla sem hristi og skók jörðina. Síðan var tekin hringur á Selfossi og ekin Eyrarbakki og Þrengslin til baka, veðrið spilti ekki fyrir þessu landsmóti það var frábært.
Það eru komnar myndir á myndasiðuna.
júlí/100
Meira um Landsmótið Sunnudaginn 18 Júlí
Mæting OLÍS Norðlingaholti 13 – 14.00 Röðum okkur upp austan við stöðinna, kaffi og kleinur í boði OLÍS. Um Kl. 14.30 verður lagt af stað austur fyrir fjall og heimsækjum ‘Ingólfsskála sem er aðeins fyrir austan Hveragerði , léttar veitingar á góðu verði fyrir okkur félagana , þarna er stór landnámsskáli og röðum við bílunum upp fyrir framan skálan. Hann Björn vertinn þarna er félagi í klúbbnum og tekur vel á móti okkur. Síðan ökum við á Selfoss tökum hring þar og endum á planinu hjá OLÍS , Þeir sem hafa OLÍS kort geta feingið 10% afslátt á bensíni þar, nánari upplýsingar hjá Jóa formanni. Nú segir veðurspáinn að það verður veður eins og það gerist best, Þannig að gerum þetta að skemtilegum degi og fjölmennum á mótið.
Jóivill formaður
júlí/100
Landsmót Icecad í Íngólfsskála 18 Júli 2010
Við ætlum að halda þriðja landsmót íslenska Cadillac klúbbsinns þann Sunnudaginn 18 júli með Sunndudaginn 25 Júli til vara, fer eftir veðri. Við ætlum að hittast um 13.00-14.00 á OL’IS Norðlingaholti höldum smá fund og fáum okkur kaffi, síðan keyrum við austur um kl. 15.00 og fáum okkur meira kaffi og kökur í Ingólfsskála. Við Kristján X fengum okkur smá bíltúr í dag og skoðuðum aðstæður. Vonandi verður góð mæting þetta árið.
Kv Jóivill formaður
júní/100
17 Júní
Það voru yfir 50 bílar sem keyrðu Laugarveginn á 17 Júní. Frekar dræm þáttaka hjá Cadillac mönnum en það voru 6 Caddar með í keyrsluni þökkum þeim. Þetta var frábær dagur og röðuðum við okkur upp með krúserklúbbnum á Skothúsveginum eftir keyrslunna niður Laugarveginn . Við vorum búnir að koma okkur fyrir um 14.00 og Kl. 15 .00 spilaði Krúserbandið fyrir okkur við góðar undirtektir. Við erum búnir að setja inn myndir á myndasíðunna okkar einnig á www.picasaweb.google.com/joivill
Takk fyrir Jóivill formaður
júní/100
Cadillac klúbburinn keyrir með Krúser klúbbnum
Krúserar verða með bílasýningu á Skothúsveginum 17. júní eins og undanfarin ár. Mæting er eins og í fyrra í Sætúni, ökum sömu leið og inn á Laugaveginn kl. 13.00, förum í 1 gír og röðum okkur á Skothúsveginn. Cadillac klúbburinn keyrir með okkur. Krúserbandið, sem samanstendur af snillingunum Dóra á rafmagnsgítar, Jonna á bassa og Bigga Baldurs á trommum heldur uppi stuðinu á svæðinu. Svo er bara að vona að veðrið verði gott.
Krúser – bara gaman